Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 13. júní 2022 17:17
Elvar Geir Magnússon
Byrjunarlið Íslands: Hákon Arnar byrjar
Hákon Arnar Haraldsson.
Hákon Arnar Haraldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Birkir Bjarnason leikur sinn 110. landsleik í kvöld.
Birkir Bjarnason leikur sinn 110. landsleik í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hinn nítján ára gamli Hákon Arnar Haraldsson er í byrjunarliði Íslands gegn Ísrael en Ísak Bergmann Jóhannesson byrjar á bekknum. Það er eina breytingin ef miðað er við leikinn gegn Albaníu fyrir viku síðan.

Mikael Anderson er utan hóps vegna meiðsla.

Ef Ísland tapar í kvöld er möguleiki strákanna okkar á því að enda í efsta sæti riðilsins, og komast þar með upp í A-deild, horfinn. Aðeins þrjú lið eru í riðlinum þar sem Rússlandi var meinuð þátttaka vegna innrásarinnar í Úkraínu. Rússar falla sjálfkrafa niður í C-deild og hin liðin því örugg.

Smelltu hér til að fara í beina textalýsingu frá leiknum

Byrjunarlið Íslands:
1. Rúnar Alex Rúnarsson (m)
2. Alfons Sampsted
7. Arnór Sigurðsson
8. Birkir Bjarnason
11. Jón Dagur Þorsteinsson
14. Daníel Leó Grétarsson
17. Hákon Arnar Haraldsson
19. Davíð Kristján Ólafsson
20. Þórir Jóhann Helgason
22. Andri Lucas Guðjohnsen
23. Hörður Björgvin Magnússon


Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner