Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 13. júní 2022 11:30
Elvar Geir Magnússon
Chiellini til Los Angeles (Staðfest)
Mynd: EPA
Giorgio Chiellini er tilbúinn fyrir nýja áskorun erlendis og hefur samið við Los Angeles FC í bandarísku MLS-deildinni.

Chiellini yfirgaf Juventus eftir liðið tímabil en hann lagði landsliðsskóna á hilluna í upphafi mánaðrins.

Chiellini er 37 ára og hefur sagst ætla að starfa áfram í fótboltanum eftir að skórnir fara á hilluna og segist búa sig undir starf bak við tjöldin.

„Ævintýri mitt í Bandaríkjunum mun búa mig undir næsta skref," segir Chiellini.

Chiellini varð níu sinnum Ítalíumeistari með Juventus og fimm sinnum bikarmeistari. Hann lék tvívegis í úrslitum Meistaradeildarinnar en tapaði í bæði skiptin.
Athugasemdir
banner
banner
banner