Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 13. júní 2022 12:00
Elvar Geir Magnússon
Króatar dæma á Laugardalsvelli en Serbar sjá um VAR
Mynd: EPA
Duje Strukan, 38 ára Króati, verður með flautuna á Laugardalsvelli í kvöld þegar Ísland og Ísrael mætast á Laugardalsvelli í Þjóðadeildinni.

Strukan er ekki mjög hátt skrifaður á dómaralista FIFA og dæmdi í Sambandsdeildinni og Evrópukeppni unglingaliða á liðnu tímabili.

Lestu um leikinn: Ísland 2 -  2 Ísrael

Aðstoðardómararnir og fjórði dómarinn koma einnig frá Króatíu en Serbar sjá um vaktina í VAR-dómgæslunni. Aðal VAR dómari er Novak Simovic.

Ef Ísland tapar í kvöld er möguleiki strákanna okkar á því að enda í efsta sæti riðilsins, og komast þar með upp í A-deild, horfinn.

Leikur Íslands og Ísrael hefst 18:45 á Laugardalsvelli.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner