Ástralía er komið áfram á HM í Katar eftir að hafa unnið Perú í vítaspyrnukeppni. Varamarkvörður Ástrala var óvænt hetja liðsins í vítakeppninni.
Eftir nokkuð jafnan leik í umspilinu var markalaust þegar flautað var leiksloka.
Ekkert var skorað í framlengingunni en undir lok hennar ákvað Graham Arnold, þjálfari Ástrala, að gera breytingu.
Matty Ryan, markvörður liðsins, fór af velli og Andrew Redmanye kom inn í hans stað. Sannkölluð Louis van Gaal skipting en það muna flestir eftir því er hann skipti Jasper Cillessen af velli og setti Tim Krul inná í vítaspyrnukeppninni gegn Kosta Ríka í 8-liða úrslitum HM fyrir átta árum.
Sú skipting gekk fullkomlega upp og tryggðii Krul Hollendingum í undanúrslit og var niðurstaðan eins í kvöld.
Redmayne varði sjöttu spyrnu Perú og tryggði þannig Áströlum inn á HM.
Athugasemdir