Fotbolti.net
13.06.25 - 14:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Níu í íslenska hópnum að fara á sitt fyrsta Evrópumót

Dagný er að fara á sitt fjórða stórmót með Íslandi.

Dagný er að fara á sitt fjórða stórmót með Íslandi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
Hópur Íslands fyrir EM var í dag tilkynntur; 23 leikmenn sem fara á EM í Sviss fyrir Íslands hönd.

Þetta er fimmta Evrópumótið í röð sem Ísland tekur þátt í en stelpurnar voru líka með á EM 2009, EM 2013, EM 2017 og EM í Englandi 2022.

Það hefur enginn leikmaður farið á öll fimm mótin en það eru tveir leikmenn í hópnum núna sem eru á leið á sitt fjórða mót.
Þær fara á EM fyrir Íslands hönd
TENGT EFNI

Þær fara á EM fyrir Íslands hönd

Á síðasta Evrópumóti voru þær ellefu sem fóru á sitt fyrsta mót en núna eru þær níu. Svo eru tíu sem eru á leiðinni á sitt annað Evrópumót.

Það eru tíu breytingar frá síðasta Evrópumóti en 13 leikmenn eru áfram í hópnum frá því móti.

Á leið á sitt fyrsta mót:
Berglind Rós Ágústsdóttir (Valur)
Diljá Ýr Zomers (Leuven)
Fanney Inga Birkisdóttir (Hacken)
Hafrún Rakel Halldórsdóttir (Bröndby)
Hildur Antonsdóttir (Madrid CFF)
Hlín Eiríksdóttir (Leicester)
Katla Tryggvadóttir (Kristianstad)
Natasha Anasi (Valur)
Sædís Rún Heiðarsdóttir (Vålerenga)

Á leið á sitt annað mót:
Alexandra Jóhannsdóttir (Kristianstad)
Amanda Andradóttir (Twente)
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir (Breiðablik)
Cecilía Rán Rúnarsdóttir (Inter)
Guðný Árnadóttir (Kristianstad)
Guðrún Arnardóttir (Rosengård)
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir (Bayer Leverkusen)
Telma Ívarsdóttir (Breiðablik)
Sandra María Jessen (Þór/KA)
Sveindís Jane Jónsdóttir (Angel City)

Á leið á sitt þriðja mót:
Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Ingibjörg Sigurðardóttir (Bröndby)

Á leið á sitt fjórða mót
Dagný Brynjarsdóttir (West Ham)
Glódís Perla Viggósdóttir (Bayern München)


Sveindís er á leið á sitt annað mót.

Sveindís er á leið á sitt annað mót.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.