Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 13. júlí 2021 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Crystal Palace fær nýjan markvörð (Staðfest)
Mynd: Crystal Palace
Crystal Palace hefur fengið Remi Matthews til félagsins og skrifar hann undir tveggja ára samning.

Matthews byrjaði ferilinn hjá Norwich en hefur síðan leikið með Doncaster, Plymouth, Bolton og síðast með Sunderland.

Matthews er 27 ára og kemur inn þar sem Stephen Henderson og Wayne Hennessey eru farnir.

Vicente Guaita og Jack Butland eru áfram hjá félaginu og má reikna með því að Matthews verði þriðji markvörður.
Athugasemdir
banner