Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 13. júlí 2021 08:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Mat Ryan til Sociedad (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Mat Ryan er genginn í raðir Real Sociedad á Spáni eftir fjögur ár hjá Brighton í úrvalsdeildinni.

Ástrallinn var á láni hjá Arsenal seinni hluta síðasta tímabils, varð varamarkvörður liðsins og spilaði þrjá deildarleiki með Skyttunum.

Ryan skrifar undir fjögurra samning við Sociedad. Kaupverðið er óuppgefið.

Ryan er 29 ára gamall og á að baki 60 landsleiki fyrir Ástralíu. Hann lék 121 deildarleik með Brighton á sínum tíma hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner