Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 13. júlí 2021 18:22
Ívan Guðjón Baldursson
Norwich fær miðjumann frá Nice (Staðfest)
Mynd: EPA
Norwich er búið að staðfesta komu franska miðjumannsins Pierre Lees-Melou frá Nice.

Lees-Melou er 28 ára gamall og hefur leikið fyrir Nice undanfarin fjögur ár. Norwich er talið greiða tæplega 5 milljónir fyrir leikmanninn.

Lees-Melou er fjölhæfur og var mikið notaður sem sóknartengiliður hjá Nice og stundum úti á hægri kanti.

Hann lék fyrir Dijon áður en hann gekk í raðir Nice og er fenginn til að breikka hóp nýliða Norwich fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni.

Norwich rúllaði yfir Championship deildina á síðustu leiktíð og fékk 97 stig úr 46 leikjum.


Athugasemdir
banner
banner
banner