Fotbolti.net
13.07.23 - 20:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Daníel fetaði í fótspor föður síns: Þurfti að jafna gamla

Auglýsing
Markinu fagnað innilega

Markinu fagnað innilega

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Hafsteinsson, leikmaður KA, ræddi við Fótbolta.net eftir Evrópusigur gegn Connah's Quay á Framvelli í kvöld. KA vann 2-0 sigur og skoraði Daníel, sem er uppalinn í KA, seinna mark liðsins.

„Þetta er bara geðveikt, langt síðan síðast. Ótrúlega skemmtilegt að sjá helling af fólki í Reykjavík á „heimavellinum", það er bara frábært. Ég held að Greifavöllurinn taki ekkert mikið meira, bara frábær tilfinning," sagði Danni en tæplega þúsund manns voru í stúkunni.
„Það var fínt að spila þennan leik, þetta er óvenjulegur leikur, veit ekki alveg við hverju maður á að búast en þegar stressið fór úr okkur eftir 15-20 mínutur þá var þetta bara mjög skemmtilegt og ég náði að njóta þess að vera inn á."

Daníel var reglulega dæmdur brotlegur í leiknum og virtist úr stúkunni vera fyrir litlar sakir. „Ég er sammála því, línan eitthvað aðeins öðruvísi. En sem betur fer var þetta ekki brot á mikilvægum stöðum."

Hann var óvænt á bekknum í síðasta leik KA sem er ekki algeng sjón, en var kominn aftur í byrjunarliðið í kvöld. Var gott að fá raunveruleikatékk með því að fara á bekkinn?

„Ég veit það ekki, jú þá kannski lítur maður aðeins inn á við. Ég var ekki að biðja um meira, en það getur verið að það hafi hjálpað eitthvað."

Daníel skoraði seinna mark leiksins þegar um tíu mínútur voru eftir. „Ég var brjálaður við Bjarna, hann vildi fá að fara inn í og sagði mér að vera úti. Ég leyfði honum það, síðan kemur boltinn bara á móti mér og eina sem ég sé er bara að hamra boltann og hann endar einhvern veginn inni. Ég þakka Bjarna fyrir það."

„Gamli var búinn að skora eitt í Evrópu, ég þurfti að jafna það,"
sagði Daníel. Hafsteinn Jakobsson er faðir Daníels og skoraði hann eina mark KA í 1-0 sigri á CSKA Sofia árið 1990. Það var fyrir leikinn fyrsti og eini Evrópusigur KA í sögunni.

Seinna markið breytir aðeins stöðunni fyrir seinni leikinn.

„Ég er sammála því, það verður aðeins þægilegra að fara út og smá forskot. En þetta er alls ekki búið og við erum bara spenntir fyrir seinni leiknum," sagði Daníel. Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum efst.
Ég var brjálaður við Bjarna, hann vildi fá að fara inn í og sagði mér að vera úti.

Ég var brjálaður við Bjarna, hann vildi fá að fara inn í og sagði mér að vera úti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.