Lið vikunnar í enska - Samtals sex frá Man Utd og Liverpool

Markvörður: David de Gea (Man Utd) - Spánverjinn hefur hrist af sér vonbrigðin á HM og átti þrusugóðan leik í sigri á Leicester.

Mynd: Getty Images

Hægri bakvörður: Aaron Wan-Bissaka (Crystal Palace) - Þessi 21 árs leikmaður átti ekki í nokkrum vandræðum í sigri gegn Fulham.

Mynd: Getty Images

Miðvörður: John Stones (Man City) - Eins og klettur í vörn City sem vann Arsenal.

Mynd: Getty Images

Miðvörður: Virgil van Dijk (Liverpool) - Hefur leyst vandræði Liverpool í vörninni, án þess að blása úr nös.

Mynd: Getty Images

Vinstri bakvörður: Luke Shaw (Man Utd) - Skoraði gegn Leicester og sýndi mikla löngun til að gera þetta að góðu tímabili.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Naby Keita (Liverpool) - Eftir frammistöðuna í 4-0 sigrinum gegn West Ham er strax farið að bera hann saman við Steven Gerrard.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Jorginho (Chelsea) - Miklar væntingar eru gerðar til Jorginho hjá Chelsea og hann stóð undir þeim í öruggum sigri gegn Huddersfield.

Mynd: Getty Images

Miðjumaður: Paul Pogba (Man Utd) - Sýndi gæði sín í sigrinum gegn Leicester. Verður þetta tímabilið hans?

Mynd: Getty Images

Sókn: Sadio Mane (Liverpool) - Líflegur, stórhættulegur og skoraði tvö mörk. Hann ætlar ekki að vera í neinu aukahlutverki í vetur!

Mynd: Getty Images

Sókn: Raheem Sterling (Man City) - Vörn Arsenal var í alls konar vandræðum með hann.

Mynd: Getty Images

Sókn: Richarlison (Everton) - Tvö mörk í fyrsta úrvalsdeildarleiknum fyrir Everton. Dugði þó aðeins til jafnteflis gegn Wolves.

Mynd: Getty Images






