Fotbolti.net
13.08.26 - 15:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Livey

Byrjunarlið Vals í Danmörku: Tveir framherjar út fyrir tvo varnarmenn

Daniel Ingi á bekknum

Danski framherjinn Patrick Pedersen sest á bekkinn.

Danski framherjinn Patrick Pedersen sest á bekkinn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Klukkan 17:00 hefst seinni leikur Nordsjælland og Vals í 3. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni. Spilað verður á Right to Dream Park í Farum, heimavelli Nordsjælland, og eru Danirnir með tveggja marka forystu eftir fyrri leikinn á Hlíðarenda.

Leikurinn verður í beinni útsendingu á Livey og í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.
Lestu um leikinn: Nordsjælland 1 - 0 Valur
Chris Brazell, þjálfari Vals, gerir tvær breytingar frá sigrinum á Breiðabliki á sunnudag. Patrick Pedersen og Dagur Orri Garðarsson taka sér sæti á bekknum og inn koma þeir Jakob Franz Pálsson og Hörður Ingi Gunnarsson.

Skagamaðurinn Daniel Ingi Jóhannesson er á varamannabekk Nordsjælland. Sex breytingar eru á danska liðinu á milli leikjanna gegn Val.

Byrjunarlið Nordsjælland

  • 13. Andreas Hansen (m)
  • 2. Peter Ankersen
  • 4. Noah Markmann
  • 6. Mark Brink
  • 8. Nicklas Røjkjær
  • 10. Prince Amoako
  • 15. Stephen Acquah
  • 25. Juho Lähteenmäki
  • 29. Villum Berthelsen
  • 32. Victor Gustafsen
  • 40. Hjalte Boe

Byrjunarlið Valur

  • 18. Frederik August Albrecht Schram (m)
  • 3. Hörður Ingi Gunnarsson
  • 4. Markus Lund Nakkim
  • 8. Jónatan Ingi Jónsson
  • 12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
  • 15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
  • 17. Lúkas Logi Heimisson
  • 21. Jakob Franz Pálsson
  • 22. Birkir Heimisson
  • 24. Myles A Veldman
  • 28. Samúel Kári Friðjónsson
Daniel Ingi gæti komið inn á hjá Nordsjælland í dag.

Daniel Ingi gæti komið inn á hjá Nordsjælland í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lúkas Logi, Tryggvi Hrafn og Jónatan Ingi eru skráðir sem fremstu menn Vals á heimasíðu UEFA.

Lúkas Logi, Tryggvi Hrafn og Jónatan Ingi eru skráðir sem fremstu menn Vals á heimasíðu UEFA.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.