Fotbolti.net
13.08.26 - 10:20
Kári Snorrason
Spámaður

Eiður Gauti spáir í 18. umferð Lengjudeildarinnar

Skoraði tvö gegn Fram á mánudaginn.

Skoraði tvö gegn Fram á mánudaginn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Heil umferð verður leikin í Lengjudeildinni í kvöld. Eiður Gauti Sæbjörnsson spáir í 18. umferðina en hann fór á kostum í Bestu deildinni á mánudag er hann skoraði tvö mörk í stórleik KR og Fram.

Sterkastur í 18. umferð - Væri ekki í KR nema fyrir Ými
TENGT EFNI

Sterkastur í 18. umferð - Væri ekki í KR nema fyrir Ými

Ægir 0-2 Völsungur (18:00 í kvöld)
Haukur Logi mætir í klefann í leðurbuxum og netabol og þjálfarinn getur ekki gert annað en að setja hann beint í startið. Því miður dugar það ekki til og Völsungur setur síðasta naglann í kistu Ægismanna.

Vestri 1-3 ÍR (18:00 í kvöld)
Vestramenn hafa verið í brasi og það heldur bara áfram. Bergvin Fannar nær því ótrúlega afreki að skora mark, skora sjálfsmark og láta reka sig útaf allt í sama leiknum. Fær rautt fyrir tuð. Jón Arnar setur eitt af 30 metra færi.

Grindavík 0-3 Þróttur (18:00 í kvöld)
Það er heitt undir Grindavík og þessi leikur verður brekka fyrir þá frá fyrstu mínútu. Þróttarar taka þetta örugglega, 3-0. Tryggvi Geirs setur tvö og leggur upp eitt á Villa Kaldal.

Fylkir 1-3 Afturelding (19:15 í kvöld)
Verður leikur umferðarinnar, stórstjörnur út um allan völl en sú sem mun skína bjartast verður Óðinn Bjarka, setur tvö og leggur upp eitt á pönnuna á Aron Elí. Wöhlerinn svarar fyrir bikarleikinn, kjötar Axel Óskar og skorar eitt en það dugar ekki til. Afturelding með annan fótinn í Bestu og Bomban fer hamförum í stúkunni.

Grótta 1-0 Njarðvík (19:15 í kvöld)
Verður gríðarlega jafn leikur og lítið um færi. Tristan Freyr með winner beint úr aukaspyrnu seint í leiknum.

HK 3-2 Leiknir (19:15 í kvöld)
HK-ingar sáttir að komast aftur heim í hlýjuna eftir fýluferð norður. AHA10 búinn að ströggla aðeins í golfinu undanfarið og tekur reiði sína út á greyið Leiknismönnum, skorar og leggur upp og fer síðan í eina tveggja fóta tæklingu sem dómari missir af. BBB og Axel Freyr svara fyrir Leiknismenn en Birgir Steinn setur sigurmarkið með marki úr horni í home debut og rífur sig á kassann.

Fyrri spámenn:
Sigurður Hrannar (4 réttir)
Baddi Borgars (4 réttir)
Ágúst Hlynsson (3 réttir)
Jón Gísli Eyland (3 réttir)
Amin Cosic (3 réttir)
Áki Sölva (2 réttir)
Alexander Rafn (2 réttir)
Andri Júl (2 réttir)
Kristófer Ingi (2 réttir)
Markús Páll (2 réttir)
Halli Hróðmars (2 réttir)
Dagur Orri (2 réttir)
Adam Páls (2 réttir)
Ásgeir Orri (1 réttur)
Eiður Orri (?)
Bergvin Fannar mun ná ótrúlegu afreki.

Bergvin Fannar mun ná ótrúlegu afreki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tryggvi setur tvö og leggur upp eitt.

Tryggvi setur tvö og leggur upp eitt.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hefur átt erfitt uppdráttar í golfinu undanfarið.

Hefur átt erfitt uppdráttar í golfinu undanfarið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.