Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
banner
   sun 17. maí 2026 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Amin Cosic spáir í 4. umferð Lengjudeildarinnar
Amin Cosic.
Amin Cosic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dominik Radic mætir gömlu félögunum í Njarðvík.
Dominik Radic mætir gömlu félögunum í Njarðvík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í dag fer af stað fjórða umferð Lengjudeildarinnar. Það eru tveir leikir á dagskrá í dag og fjórir leikir fara fram á morgun.

Amin Cosic, sem hefur verið einn besti leikmaður Bestu deildarinnar í sumar, spáir í leikina að þessu sinni.

Ægir 2 - 1 Vestri (14:00 í dag)
Verður jafn leikur. Vestri mun halda boltanum og Ægir liggur til baka en Ægir vinnur 2-1. Marko Panic með late winner.

Grindavík 4 - 0 Völsungur (16:00 í dag)
Held að Grindavík rústi þessum leik 4-0, eru búnir að vera öflugir í bikar og mjög fínir í deildinni.

Fylkir 4 - 2 ÍR (19:15 á morgun)
Þetta verð góður leikur sem Fylkismenn taka 4-2. Eru búnir að vera mjög öflugir í deild og bikar, Teddi kemur af bekknum og setur eitt.

Grótta 0 - 4 Afturelding (19:15 á morgun)
Afturelding vinnur þennan leik sannfærandi 0-4. Elmar Cogic með tvö mörk og afturelding með öfluga frammistöðu.

HK 1 - 1 Njarðvík (19:15 á morgun)
Vá, þetta verður leikur sem menn verða að mæta á. Gunnar Heiðar elskar að spila fótbolta þannig að HK mun vera með boltann miklu meira í leiknum en Njarðvík mun spila á skyndisóknum. Held að þetta endi með 1-1 jafntefli í Kórnum, Dominik Radic með mark á móti gömlu félögunum og Símon Logi með mark Njarðvíkur.

Þróttur R. 4 - 1 Leiknir R. (19:15 á morgun)
Þróttur er með eitt af sterkustu liðunum í þessari deild og með frábæran þjálfara. Þessi leikur fer 4-1, Hlynur skorar eitt svakalegt mark í þessum leik.

Fyrri spámenn:
Markús Páll (2 réttir)
Halli Hróðmars (2 réttir)
Dagur Orri (2 réttir)
Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Afturelding 8 5 1 2 23 - 15 +8 16
2.    Fylkir 7 5 0 2 12 - 8 +4 15
3.    HK 8 5 0 3 16 - 14 +2 15
4.    Þróttur R. 7 4 1 2 16 - 9 +7 13
5.    Leiknir R. 8 3 3 2 11 - 10 +1 12
6.    Grótta 7 4 0 3 14 - 15 -1 12
7.    Njarðvík 8 3 2 3 11 - 7 +4 11
8.    Vestri 7 3 1 3 11 - 15 -4 10
9.    Grindavík 7 1 4 2 7 - 9 -2 7
10.    Ægir 8 2 1 5 9 - 14 -5 7
11.    ÍR 8 2 1 5 16 - 22 -6 7
12.    Völsungur 7 0 2 5 4 - 12 -8 2
Slapp
banner
banner