13.08.26
Jökull ræðir brottreksturinn: Virkilega vonsvikinn með vinnubrögðin
SÆBJÖRN ÞÓR ÞÓRBERGSSON STEINKE
Jökull Elísabetarson var fyrir átta vikum síðan látinn fara sem þjálfari Stjörnunnar eftir að hafa starfað hjá félaginu frá haustinu 2021. Hann var í maí 2023 ráðinn sem aðalþjálfari liðsins eftir að hafa verið aðstoðarmaður Ágústs Gylfasonar sem þá var látinn fara. Rúmlega þremur árum seinna var Jökull svo látinn taka pokann sinn.
Stjarnan komst á gott skrið 2023 og endaði í 3. sæti Bestu deildarinnar, 2024 endaði liðið í 4. sæti og rétt missti af Evrópusæti og í fyrra endaði liðið í 3. sæti.
Stjarnan var á kafla á síðasta tímabili í titilbaráttu en það fjaraði undan henni á lokakaflanum, liðið endaði 15 stigum á eftir Víkingi eftir að hafa fengið einungis tvö stig úr síðustu fimm leikjunum.
Tímabilið í ár byrjaði á tveimur sigrum, en svo fór að halla undan fæti. Fjögur töp í næstu fjórum deildarleikjum og í áttunda leik frá síðasta sigri vannst loksins annar sigur, gegn Þór. Í millitíðinni hafði bikarleikur gegn KR unnist og Stjarnan komst í 8-liða úrslit keppninnar. Undir stjórn Jökuls komst Stjarnan í 8-liða úrslit bikarsins 2023 og undanúrslit tímabilin 2024 og 2025.
Næsti leikur á eftir leiknum gegn Þór var bikarleikur gegn Aftureldingu og hann tapaðist, þar með var vonin um Evrópusæti á þessu tímabili orðin mjög lítil og tveimur dögum seinna var tilkynnt að samstarfi Stjörnunnar og Jökuls væri lokið.
Fótbolti.net ræddi við Jökul um tímann í Garðabænum og brottreksturinn sjálfan.
Þetta viðtal er endurbirt, það var fyrst birt föstudaginn 7. ágúst

Meira til staðar fyrir fjölskylduna
Hvað langar þig að segja þegar rykið er aðeins farið að setjast?
„Ekkert sérstakt þannig, ég hef tekið um einn og hálfan mánuð bæði í að kúpla mig út og inn á milli aðeins að fara yfir hlutina og hugsa. Áhugaverðum og skemmtilegum kafla lokið og nú tekur eitthvað annað áhugavert við,” segir Jökull.
Hvernig hefur þú nýtt tímann síðustu vikurnar?
„Ég hef reynt að kúpla mig út og það hefur gengið ágætlega, fór aðeins út í frí með fjölskyldunni og hef náð að vera meira til staðar fyrir hana en þegar maður er með hausinn alltaf í fótboltanum. Svo hef ég dundað mér við smíðar og forritun. Hugurinn leitar alltaf af og til yfir í að hugsa til baka og velta hlutunum fyrir sér en hef ekki gert tímann formlega upp.”

Engin eftirsjá
Hefur einhver sterk eftirsjá komið upp varðandi eitthvað sem þú hefðir viljað breyta?
„Nei, ég sé ekki eftir neinu. Það er alveg sama hvort það var þegar ég var með Augnablik, með Stjörnuna ‘23 eða ‘26, það fyrsta sem maður gerir eftir hverja einustu æfingu er að horfa til baka yfir æfinguna og ræða og velta fyrir sér hvernig hefði verið hægt að gera enn betur. Maður lærir af því sem á undan er gengið, stundum áttar maður sig á því strax og stundum aðeins seinna. Á hverri einustu æfingu síðan ég kom í Stjörnuna hefði ég getað gert betur en það er engin eftirsjá í neinu.”
Reiknar með því að halda áfram í þjálfun
Á þessum sex vikum, hvernig horfir þjálfarastarfið við þér, hugsar þú að þú ætlir þér að vera í þjálfarastarfi á næsta ári?
„Ég reikna frekar með því en ekki. Það að fá tækifæri á að vera í leiðtogahlutverki fyrir öflugan hóp af mönnum með þennan metnað og þessa drauma voru forréttindi. Ef eitthvað spennandi kemur upp þá mun ég skoða það."

„Þetta er búið að vera mikið og skemmtilegt ferðalag og það var mikilvægt að ná að spjalla aðeins við menn“
Jökull segist ekki hafa fengið nein símtöl um mögulegt starf eftir að hann hætti hjá Stjörnunni.
Er helsti stuðningsmaður hópsins
Þú kúplaðir þig út, ertu samt að kíkja á úrslitin úr leikjum?
„Maður nær auðvitað ekki að læsa umheiminn úti, ég fylgist með. Ég horfði á allan leikinn á móti Blikunum. Ég fylgist með strákunum, þykir ofboðslega vænt um þennan hóp og er þeirra helsti stuðningsmaður. En ég hef reynt að gefa sjálfum mér frí og fjölskyldunni meiri tíma.”
Þótti ofboðslega vænt um það
Varðandi Breiðabliksleikinn, Emil Atlason fór í áhugaverð viðtöl eftir þann leik þar sem hann fór fögrum orðum um þig. Sástu viðtölin við hann?

„Nei, ég sá þau reyndar ekki, en ég heyrði af því. Mér þykir ofboðslega vænt um það. Ég hef spjallað við strákana í liðinu, veit hver hugur þeirra var í kringum þetta og það hefur verið dýrmætt.”

TENGT EFNI
Emil saknar Jölla: Hafði trú á mér þegar enginn í Garðabæ hafði það
„Nei, ég sá þau reyndar ekki, en ég heyrði af því. Mér þykir ofboðslega vænt um það. Ég hef spjallað við strákana í liðinu, veit hver hugur þeirra var í kringum þetta og það hefur verið dýrmætt.”
Náðir þú að kveðja menn?
„Þó nokkrir kíktu á mig, margir hringdu og aðrir sendu skilaboð þannig að ég náði sem betur fer að þakka nánast öllum fyrir mig. Mér fannst það mikilvægt, þetta er búið að vera náið og mikið samstarf, gengið á ýmsu í gegnum þennan tíma. Ég gerði miklar kröfur til þeirra og þeir til mín á þessum tíma. Þetta er búið að vera mikið og skemmtilegt ferðalag og það var mikilvægt að ná að spjalla aðeins við menn.”
Tvennt sem mér fannst erfitt á þessum kafla
Varðandi ákvörðun stjórnar fyrir átta vikum síðan, hvernig horfir hún við þér í dag og hvernig horfði hún við þér á þeim tímapunkti? Varstu sár?
„Ég hef hvorki verið sár né reiður. Ég var auðvitað vonsvikinn að hætta að vinna með hópnum og tilhugsunin um að mæta ekki næsta dag til þess að reyna að hjálpa liðinu að verða betra var eiginlega bara óbærileg fyrstu dagana."

„Ég gat lítið gert til þess að losa þá við þann ótta“
„Ég var búinn að skoða hvort það gæti verið að ég væri vandamálið og hvort það gæti verið að ég næði ekki lengur til hópsins og var með leiðir til að tékka mig af út frá nokkrum þáttum og niðurstaðan mín var alltaf sú að hópurinn hafði trú á því sem við vorum að gera og fyrir mér var þar sterkt og hópurinn á hrós skilið fyrir það.”
„Sjálfur hafði ég, og hef enn, óbilandi trú á þessum hóp og á því að við gætum snúið þessu við saman. Annars hefði ég gengið sjálfur út."
„Það var tvennt sem mér fannst erfitt á þessum kafla. Í fyrsta lagi þá vorum við að valda stuðningsmönnum okkar vonbrigðum. Fólkið okkar var ekki að fá það sem það átti skilið, það sýndi liðinu rosalegan stuðning nánast alveg sama hvernig gekk. Hitt var að fyrir þá leikmenn sem vildu ekki missa þjálfarann sinn, ég gat lítið gert til þess að losa þá við þann ótta. Þegar það gengur á leik eftir leik og menn eru alltaf að velta því fyrir sér hvort þjálfarinn mætir í dag að þá held ég að það geti „drain-að” menn.”
Fannst liðið spila af meiri ótta
Var það sýnilegt að menn gátu ekki verið eins frjálsir og þeir vildu vera inni á vellinum út af umfjölluninni um liðið?

„Ég get auðvitað ekki fullyrt um neitt. Svona umræða í svona langan tíma held ég að hafi klárlega áhrif á lið og örugglega alla leikmenn með mismunandi hætti, bæði leikmenn sem vilja ekki missa þjálfarann og þá sem yrðu fegnir."
„Það voru kaflar í leikjum, stundum langir kaflar, þar sem mér fannst liðið spila af meiri ótta en áður, skortur á hugrekki sem er mjög ólíkt því sem við höfum séð frá þessu liði.”
Það heyrðist af því kjölfar brottrekstursins að leikmannahópur Stjörnunnar hefði staðið þétt við bakið á Jökli og hafi ekki tekið tíðindunum vel þegar þau bárust.
Stjórnin missti trú en ekki leikmenn
Ef þú horfir til baka var eitthvað sem þeir sem stýra hlutunum á bakvið tjöldin hefðu getað gert til að létta pressuna á mönnum, þ.e.a.s. koma með skilaboð annað hvort inn á við eða út á við að starf þjálfarans sé ekki í hættu?

„Aðeins eðlisfræðin lifir að eilífu, annað tekur enda og eitthvað nýtt tekur við.“
„Það eru einhverjir fletir á því. Ef stjórnin hefur trú á því sem við erum að gera, þá væri mjög sterkt að gera fólki það ljóst að það þurfi ekki að hafa áhyggjur af því (að þjálfarinn verði rekinn) og það sé hægt að taka þann faktor út. Það eru svo auðvitað bara fabúleringar hvort sá faktor hafði áhrif á frammistöðuna. En það er háð því að það sé trú á því. Ef þeir sem ráða hafa ekki trú á því að þjálfarinn sé rétti maðurinn þá þarf ekkert að ræða neitt slíkt."
„Eins og þetta horfir við mér að þá missti hópurinn ekki trú en stjórnin missti trúna og stundum er það bara þannig. Aðeins eðlisfræðin lifir að eilífu, annað tekur enda og eitthvað nýtt tekur við.”
Brottrekstur var ekki versta niðurstaðan
Eftir bikartapið gegn Aftureldingu var vonin um Evrópusætið orðin lítil. Hugsaðir þú eftir þann leik að þetta gætu verið endalokin?
„Nei, ég var löngu búinn að ákveða að það yrði ekki versta niðurstaðan að ég yrði rekinn. Versta niðurstaðan fyrir mér var að liðið næði ekki að spila á þeim gildum sem við stóðum fyrir. Ég var hættur að fylgjast með umfjöllun og mætti því mjög brattur til vinnu alla morgna og það var ekkert öðruvísi eftir þennan leik. Fókusinn minn var að geta mætt og gefið liðinu orku sem ég hefði ekki getað gert ef ég færi með hugann við það hvort ég yrði rekinn.”

Fékk tíðindin staðfest af blaðamanni
Það var tilkynnt á föstudagskvöldinu 12. júní að þú yrðir ekki áfram. Fyrr um daginn, snemma dags, var byrjað að hvíslast út að þú yrðir ekki áfram. Klukkan 15:04 birti Fótbolti.net grein þar sem sagt var að tíðinda væri að vænta úr Garðabæ og að þú yrðir ekki áfram. Hvenær vissir þú að þú yrðir ekki áfram?

„Ég fékk það frá fjölmiðlum fyrst, fékk það staðfest frá blaðamanni sem hringdi og bað um komment á það. Ég hafði þá ekkert heyrt. Síðan ég kom í Stjörnuna þá hefur aldrei neitt slúður spurst út frá félaginu. Ég var virkilega vonsvikinn að vinnubrögðin í þessu tilfelli hafi verið með þeim hætti að blaðamaður hringir og færir mér fréttirnar á undan starfsfólki Stjörnunnar.”
Þegar þú færð símtal frá fjölmiðlamanni, hugsar þú þá að þetta sé pottþétt rétt hjá honum?
„Ég var 100% á því að þetta væri rétt. Þetta var búinn að vera svo langur tími sem umræðan var í gangi, alveg frá undirbúningstímabilinu."
..Við vorum búnir að vinna tólf leiki af tólf á undirbúningstímabilinu, töpum svo einum og þá var umfjöllunin nánast þannig að þetta væri bara búið. En aldrei hef ég fengið svona símtal þannig að ég vissi að þetta væri rétt og tímapunkturinn var rökréttur.”

Tíðinda að vænta úr Garðabænum

„Ég var virkilega vonsvikinn að vinnubrögðin í þessu tilfelli hafi verið með þeim hætti að blaðamaður hringir og færir mér fréttirnar á undan starfsfólki Stjörnunnar“
Hvernig voru þín viðbrögð þegar þú hittir formanninn á föstudeginum?
„Ég sagði að ég væri mjög vonsvikinn með vinnubrögðin. Annars var þetta stutt og einfalt,”
Fannst umræðan stórfurðuleg en skilur að fólk hafi ekki verið hrifið
Þú nefndir að þið hefðuð unnið 12 leiki af 12 á undirbúningstímabilinu. Svo kom þetta umtalaða tap gegn KR og umræða um þína framtíð. Tókstu eftir henni í Garðabæ og í fjölmiðlum?
„Mér fannst umræðan vera úti um allt og mér fannst það stórfurðulegt. KR var að rúlla yfir alla sína leiki á þessum tíma. Umræðan um kringum þennan leik var mjög agressíf og á allt öðru stigi en t.d. um lið sem fóru ekki upp úr riðlinum sínum í Lengjubikarnum, þetta var leikur í undanúrslitunum. Það var eitthvað óeðlilegt við það. Það er gott að menn geri kröfur og ætlist til mikils af liðinu, en mér fannst þetta svolítið mikið og skrítið..”

Stjarnan fékk tvö stig úr síðustu fimm leikjum síðasta tímabils en náði Evrópusæti. Heldur þú að umræðan hafi tengst því hvernig tímabilið á undan endaði? Þú sagðir svo sjálfur fyrir mót, ef mig misminnir ekki, að þú hefðir ekki verið hrifinn af liðinu þínu.

„Ég held að það komment hafi kannski fengið að fljúga aðeins of hátt og ég held að ég hafi ekki orðað það þannig. Við vorum upp og niður aðeins framan af síðasta tímabili, en svo vorum við farnir að spila frábæran fótbolta. Um mitt mót vorum við eitt heitasta liðið. Það síðan breytist aðeins og við hægt og rólega förum að harka aðeins út úrslit. Ég er búinn að horfa eitthvað aftur síðan þá. Við fórum aðeins frá því sem við höfðum verið að gera, en það var ekki leiðinlegt að horfa á Stjörnuliðið þó það hafi ekki verið eins og oft áður hjá okkur. Það var vissulega aðeins styttra í langa bolta fram völlinn og öðruvísi hreyfingar.”
„Það var kafli þar sem við vorum með of litla stjórn á eigin örlögum og spiluðum ekki eins skemmtilegan fótbolta og við viljum gera; ekki jafn djarfan og ekki jafn orkumikinn fótbolta og við viljum gera. Við breyttum því fyrir síðasta leikinn og það var mjög skemmtilegur leikur þó að við töpuðum honum. Það getur vel verið að síðasta tímabil hafi haft einhver áhrif á umræðuna, en ef menn fylgdust með undirbúningstímabilinu þá var þetta allt annað og það var mjög gaman að horfa á Stjörnuliðið alveg frá því í nóvember.”
„En varðandi KR leikinn þá skil ég að mönnum hafi blöskrað, frammistaðan var flöt. En það er allt í lagi að eiga leik þar sem hlutirnir ganga ekki upp og stundum fær maður skell og það að fá hann á undirbúningstímabili er allt í lagi þó að í fullkomnum heimi þá kemur það ekki fyrir. Maður hugsar alltaf út frá stuðningsmönnum, við þurfum að vinna fyrir stuðningnum. Ef það er ekki ástríða þá fáum við ekki fólkið með okkur, hvað þá ef úrslitin falla gegn okkur. Þessi frammistaða var hvort tveggja, flöt og vond úrslit. Ég skil alveg að fólk sem hafði ekki séð leikina á undan hafi ekki verið hrifið.”
Helgi Hrannarr bakkaði allt upp
Það urðu breytingar bakvið tjöldin hjá Stjörnunni eftir síðasta tímabil, Helgi Hrannarr Jónsson steig til hliðar eftir að hafa verið áberandi í kringum starf meistaraflokks karla. Fannst þú einhverja breytingu?

TENGT EFNI
Jökull hreinskilinn varðandi síðasta tímabil - „Vaknaði við vondan draum“

„Það fylgja alltaf breytingar þegar fólk fer út eða nýtt fólk kemur inn“
„Það fylgja alltaf breytingar þegar fólk fer út eða nýtt fólk kemur inn. Helgi Hrannarr var mjög áhugasamur um það hvernig ég vann og ég opnaði allt og hann fékk mjög góða innsýn inn í það hvernig ég vinn og hvernig ég hugsa og nálgast hlutina. Hann var mjög forvitinn og ég fann að hann hafði mikla trú á mér og því sem við vorum að gera. Hann bakkaði allt upp, hvort sem það sneri að því að fá erlenda þjálfara í heimsókn eða nýja tækni.”
Umræðan á meðan Helgi var í stjórninni var sú að þú værir hans maður, hann hafði mikla trú á þér. Upplifðir þú minni trú á þér eftir að hann fer?
„Ég hef eiginlega ekki áhuga á einhverjum samanburði hvað það varðar en allir sem hafa komið mjög nálægt því sem við höfum verið að gera hafa haft mjög mikla trú og árangurinn hefur líka verið mjög góður.”
„2023 og 2024 var liðið í ódýrari helmingnum í deildinni, lang yngsta liðið og enduðum í 3. og 4. sæti. Á báðum árum vorum við að selja mikið af leikmönnum. Í fyrra enduðum við í 3. sæti, liðið varð dýrara þegar leið á tímabilið."

Hafði mikil áhrif að missa Alpha og Samma
Komandi inn í tímabilið í ár, varstu sáttur með samsetningu á hópnum? Var þetta hópur til að stefna á toppsætin, fara langt í bikar og áfram í Evrópu?
„Já, ég var sáttur við hópinn og er ennþá á því að hópurinn var vel samsettur. En það hins vegar breytist eftir fyrstu tvo leikina þegar við losuðum tvo mjög sterka leikmenn. Liðið var ennþá mjög sterkt en áður en Alpha og Sammi fóru þá var hópurinn miklu minni en í fyrra. Siggi var líka farinn á lán áður."
„Það var tækifæri fyrir okkur til þess að koma stórir inn í þetta tímabil með rosalega samkeppni í liðinu. Í rauninni í fyrsta skipti sem við værum ekki að horfa á toppbaráttu sem „underdogs"."
„Það að losa Alpha og Samma hafði mikil áhrif. Alpha er auðvitað búinn að sýna hvað í honum býr í Keflavík. Sammi var algjör lykilmaður í fyrra og mjög sterkur karakter. Ofan á það þá varð hópurinn of lítill. Það blasti við að stærð hópsins myndi ekki ráða við það að spila í tveimur keppnum fram í ágúst og því miður þá kom það á daginn og við lentum í rosalega miklum meiðslum. Við hefðum auðvitað getað breytt leikstílnum en ég vildi það ekki, við vorum alltaf að fara að spila orkumikinn og orkufrekan fótbolta þó svo að það myndi kosta í þéttu prógrammi. Við vorum ekki að fara að bakka frá neinu sem við ætluðum að gera, sama hver staðan á hópnum var. Það var ekkert vandamál að sækja leikmenn í 3. flokkinn.”

„Það var tækifæri fyrir okkur til þess að koma stórir inn í þetta tímabil með rosalega samkeppni í liðinu. “
„Liðið var mjög sterkt samt sem áður og það að Alpha og Sammi hafi farið var ekki ástæðan fyrir fyrstu tapleikjunum. Þar hefðum við einfaldlega átt að gera betur eins og auðvitað í öllum tapleikjum.“
Óskaði eftir því að fá menn í staðinn
Samúel Kári Friðjónsson og Alpha Conteh fóru frá Stjörnunni fyrir gluggalok en engin styrking kom á móti.
„Stundum fara menn, það getur gerst með alls konar hætti og af alls konar ástæðum. Staðan hjá okkur þegar við fórum inn í mótið var þannig að mér fannst hún vera rétt og ég held að við hefðum þurft að taka menn inn ef einhver eða einhverjir færu út.”
Óskaðir þú eftir því að fá inn leikmenn?

„Já ég gerði það, mér fannst þarna vanta upp á hópinn."
Enginn kom inn á móti og Stjarnan fór því inn í mótið þunnskipaðri en þjálfarateymið hafði áætlað komandi inn í tímabilið.
Samspil af mörgu
Hvernig gerir þú upp tímabilið í ár, þann tíma sem þú stýrðir liðinu? Er eitthvað sem hægt er að benda á að hafi vantað upp á?
„Það er klárlega samspil af mörgu. Það er ekki þannig að það sé hægt að benda á eitthvað eitt og núna liggur það hjá öðrum að pæla í því fyrir hönd liðsins og ég leggst yfir það fyrir mig.”

„Það að losa Alpha og Samma hafði mikil áhrif.“
Frá Lalla trúð í Gandálf
Umræðan á tíma þínum hjá Stjörnunni var stundum þannig að menn veltu fyrir sér af hverju þú hafir ekki verið með stærra og reynslumeiri aðila sem aðstoðarþjálfara. Varðst þú var við hana og hefur þú einhverja skoðun á því?
„Nei, ég varð ekki var við hana. En það hafa hins vegar margir haft það á orði við mig sína skoðun á því hvernig þjálfara ég á að vera með mér. Það er allt frá því að vera Lalli trúður upp í það að vera Gandálfur. Allir hafa sína skoðun, ég held það sé ekkert eitt rétt svar í þessu."
Mikið hrós til allra
Tíminn í heild sinni hjá Stjörnunni, það eru margir leikmenn seldir erlendis og liðið var mjög ungt fyrstu tvö árin. Hvernig horfir þú til baka?
„Ég horfi til baka og fyllist bara stolti. Það er margt sem stendur upp úr. Þar er helst vinnan með hópnum og að fá að fylgjast með mönnum þróast og þroskast. Hluti af því er að ungir leikmenn voru seldir út. Eitt skemmtilegasta var að ég held að hver einasti leikmaður hafi bætt sig gríðarlega mikið á þessum tíma, það er mikið hrós til allra sem að þessu stóðu og sérstaklega til leikmannanna sem voru tilbúnir að leggja mikið á sig og búa til umhverfi þar sem menn bæta sig og þroskast. Við hækkuðum allan „standard" í öllu sem við gerðum í kringum liðið. Mér fannst líka eldri leikmennirnir bæta sig mikið á þessum tíma. Öll vinnan og að sjá menn verða öflugri, þroskast, fara út úr þægindarammanum og skora á sjálfa sig og aðra í kringum sig, það var mjög gefandi og dýrmæt reynsla.”

„Það að koma ungum leikmönnum í gegn er frábært. Það að sjá menn fara og upplifa drauminn og ná að taka næsta skref í því sem þeir vilja gera. Þeir eru allir mjög ólíkir og voru allir á mjög ólíkum stað í kringum meistaraflokkinn.”
Allir standa upp úr
Er einhver leikmaður sem þú vilt taka út fyrir sviga?
„Nei það standa allir upp úr. Ég er mjög þakklátur fyrir að hafa fengið að vinna með öllum sem ég fékk að vinna með. Líka fólkinu í Stjörnunni og teyminu. Við vorum með öflugt teymi og ég var með nokkra aðstoðarþjálfara, Hrannar (Bogi Jónsson) er frábær, (Steven) Caulker kom frábærlega inn, ég er ánægður að hafa unnið með honum, hann var mjög öflugur og verður virkilega góður þjálfari. Bjössi (Björn Berg Bryde) var geggjaður og ég hef oft saknað hans eftir að hann fór, gaman að sjá hann taka skrefið úr því að verða leikmaður í að verða þjálfari sem er alveg erfitt á þessum aldri og þessum stað þar sem þú þekkir allan hópinn. Hann var frábær."
„Ég er stoltur og þakklátur fyrir tímann í Stjörnunni, ég naut hverrar sekúndu og óska þeim alls hins besta!” segir Jökull að lokum.

Þegar stjórn Stjörnunnar ákvað að gera breytingar var liðið með tíu stig eftir tíu leiki og markatöluna 18:22. Í leikjunum sjö eftir ákvörðunina hefur Stjarnan fengið átta stig og markatöluna 14:21. Stjarnan fékk á sig tíu mörk í tveimur töpum á milli Evrópuverkefna og var staðan ansi svört fyrir sigurinn gegn Val á mánudag.
Stjarnan komst áfram eina umferð í Evrópu með sigri á færeyska liðinu Víkingi Götu en datt út eftir vítaspyrnukeppni gegn finnska liðinu Ilves í 2. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni.