Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   sun 13. september 2020 18:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
James bjó til fimm færi - Enginn skapað fleiri síðan Gylfi 2018
James í leiknum.
James í leiknum.
Mynd: Getty Images
James Rodriguez lék sinn fyrsta leik fyrir Everton þegar liðið spilaði gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Everton vann leikinn 1-0 þar sem Dominic Calvert-Lewin skoraði sigurmarkið.

James var keyptur til Everton frá Real Madrid í sumar fyrir um 20 milljónir punda. Samkvæmt tölfræði frá Sky Sports þá skapaði hann fimm færi í leiknum, en enginn leikmaður hefur skapað fleiri færi í úrvalsdeildarleik með Everton síðan í ágúst 2018.

Sá leikmaður var Gylfi Þór Sigurðsson, sem byrjaði á bekknum í dag. Hann skapaði sex færi í leik gegn Southampton.


Athugasemdir
banner
banner
banner