Meistaradeildinni skipt í fyrsta sinn í íslensku sjónvarpi
Riðlakeppni Meistaradeildarinnar fer af stað á morgun en í fyrsta sinn á Íslandi er útsendingaréttinum á keppninni skipt upp á milli tveggja sjónvarpsfyrirtækja, Viaplay og Stöð 2 Sport.
Önnur stöðin fær fyrsta valrétt á leik í umferðinni og hin fær svo fyrsta valrétt í næstu leikviku.
Svona fyrirkomulag þekkist víða um heim en þetta er í fyrsta sinn sem við Íslendingar fáum að kynnast því.

Úrslitaleikurinn í Meistaradeildinni á þessu tímabili verður á Viaplay en á því næsta verður Stöð 2 Sport með úrslitaleikinn.
Viaplay verður með leik Young Boys og Manchester United á morgun en Stöð 2 Sport með leik Liverpool og AC Milan á miðvikudaginn.
Hér má finna hvaða leiki Viaplay er að fara að sýna og hér má sjá hvað er framundan í beinni á Stöð 2 Sport.
Athugasemdir