Christopher Harrington er hættur þjálfun hjá Fram eftir tvö ár sem þjálfari meistaraflokks kvenna.
„Christopher mun skipuleggja og móta yngri flokka starfið á nýjum stað ásamt því að endurvekja meistaraflokk kvenna," var sagt þegar Christopher var tilkynntur.
Christopher var aðstoðarþjálfari Þór/KA árin 2018 og 2019 og á sama tíma þjálfari 2.fl.kv. hjá Þór/KA og hjá Hömrunum á Akureyri en 2.fl.kv. varð íslandsmeistari undir hans stjórn. Hann hefur einnig þjálfað Tindastól ásamt því að hafa starfað sem þjálfari bæði í Bandaríkjunum og á Írlandi. Nú síðast þjálfaði hann B71 í Færeyjum ásamt því að vera yfir unglingastarfi félagsins.

Fram endaði í 4. sæti 2. deild í sumar og í 7. sæti í fyrra. Christopher birti færslu á Twitter í morgun þar sem hann þakkaði fyrir árin tvö.
Takk Fyrir!💙 pic.twitter.com/ML0P24wWHi
— Christopher Harrington (@ChrisHarrosix) September 13, 2021
Athugasemdir