Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
Oliver: Keflavík tilkynnti mér að ég væri laus
Glódís eftir sögulegan leik: Veit það nú ekki alveg
Karólína Lea: Ég er eins og einhver stolt mamma þegar ég sé hana
Linda Líf eftir fraumraunina: Geggjað að fyrsti landsleikurinn hafi verið sigur
Cecilía: Ég er vön þessu stundum úti
Thelma Karen: Vantaði helminginn af vinkonunum
Alexandra: Alltaf gaman í þau fáu skipti sem það gerist
Steini vonsvikinn: Þetta er að gerast annars staðar
Sandra María: Hún getur allt sem hún vill
Sterkastur í 1. umferð - Þetta var erfiður leikur maður
Sigurjón Rúnars: Tíu mínútna kafli sem við slökktum á okkur
Lárus Orri: Markús Páll og Viktor Jóns ná vel saman
Markús Páll: Alltaf gaman að skora, af hverju ekki að fagna?
Rúnar Kristins: Hafði ekki hugmynd um að Markús Páll væri á leiðinni til Íslands
Jökull: Það var bara óþarfi
Hetja Þórsara gegn Val: Búinn að bíða helvíti lengi eftir því að koma inn á
Haddi: Mjög svekkjandi það sem ég heyri
Siggi um ummæli Hemma: Hann má alveg halda það
Halli Gumm: Sex mínútur eftir - Þurfum að geta haldið þetta út
Hemmi eftir tap gegn Þór: Stjórnuðum leiknum frá A til Ö
banner
   lau 13. september 2025 19:21
Gunnar Bjartur Huginsson
Sigfús Fannar: Þetta mark var fyrir hana
Sigfús Fannar heiðraði minningu ömmu sínar eftir markið sem hann skoraði.
Sigfús Fannar heiðraði minningu ömmu sínar eftir markið sem hann skoraði.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þórsarar frá Akureyri tryggðu sig upp í Bestu deild karla í dag með 1-2 sigri á Þrótti en um var að ræða úrslitaleik um sæti í Bestu deildinni. Sigfús Fannar Gunnarsson braut ísinn og skoraði fyrsta mark Þórs í leiknum og kom það fáum á óvart, enda verið einn allra besti leikmaður Lengjudeildarinnar.

Ég fór bara í eitthvað 'blackout' einhvern veginn, hljóp bara að áhorfendum og gerði bara eitthvað. Ég var búinn að lofa öllum fögnum og allt. Ég gerði bara eitthvað," sagði Sigfús Fannar Gunnarsson um markið hans í leiknum. 


Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 -  2 Þór

Sigfús Fannar fagnaði þó markinu vel og innilega og heiðraði þar minningu ömmu sinnar í fagninu og að sjálfsögðu náði Hafliði Breiðfjörð því á myndavélina.

Þetta er amma mín sem lést í fyrra. Þetta var mark fyrir hana. Þetta var fyrir hana."

Sigfús Fannar Gunnarsson endar þetta tímabil sem næstmarkahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar og kórónar það með marki í úrslitaleiknum sjálfum.

Þetta er geggjað. Þetta er bara sjálfstraustið og að halda bara áfram og áfram. Ég þarf að fara setja fleiri en eitt mark alltaf í leik. Það væri fínt að fara setja 2-3 mörk einhvern tímann."

Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum að ofan.


Slapp
banner