Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 13. október 2020 13:00
Victor Pálsson
Modric: Auðvitað vil ég spila fyrir Real
Mynd: Getty Images
Luka Modric, leikmaður Real Madrid, vill halda ferlinum áfram hjá félaginu en mun fara annað ef hann þarf að verma varamannabekkinn.

Modric er orðinn 35 ára gamall en hann verður samningslaus næsta sumar og er framtíðin óljós.

Króatinn hefur spilað með Real undanfarin átta ár en hann mun leita sér að nýrri áskorun þegar félagið telur sig ekki hafa not fyrir hann.

„Þetta er eins með Real og með landsliðinu. Ég spila einn leik í einu og svo sjáum við hvað gerist," sagði Modric.

„Auðvitað vil ég spila áfram með Real Madrid. Ég veit hins vegar að ég er kominn á ákveðinn aldur og þarf að gera það besta fyrir alla aðila."

„Svo lengi sem ég er mikilvægur hlekkur í liði Real þá vil ég vera áfram. Þegar það er ekki raunin þá mun ég leita að nýrri áskorun."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner