Fotbolti.net
13.10.21 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Gunnar Magnús áfram með Keflavík (Staðfest)

Freyr Sverrisson, Gunnar Magnús Jónsson, Hjörtur Fjeldsted og Óskar Rúnarsson

Freyr Sverrisson, Gunnar Magnús Jónsson, Hjörtur Fjeldsted og Óskar Rúnarsson

Canon

Mynd: Knattspyrnudeild Keflavíkur

Kvennaboltinn
Gunnar Magnús Jónsson verður áfram þjálfari kvennaliðs Keflavíkur en hann gerir samning út næsta tímabil.
Gunnar hefur þjálfað meistaraflokk kvenna síðustu sex ár en samningur hans við félagið rann út eftir tímabilið.

Eftir mikla baráttu tókst Keflavík að bjarga sæti sínu í Pepsi Max-deildinni en liðið endaði með 18 stig í 8. sæti deildarinnar.

Gengið var frá samningum við Gunnar og þjálfarateymið í gær en þeir semja allir út næsta tímabil.

Hjörtur Fjeldsted verður áfram Gunnari til halds og traust. Óskar Rúnarsson verður leikgreinandi og Freyr Sverrisson verður tækniþjálfari. Sævar Júlíusson verður þá markmannsþjálfari liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.