Fotbolti.net
13.10.21 - 20:07
Brynjar Ingi Erluson

Madrídarliðin spila ekki um helgina - Leikjunum frestað

Atlético spilar ekki um helgina

Atlético spilar ekki um helgina

Canon

Mynd: EPA

Madrídarliðin, Atlético og Real, spila ekki um helgina en leikjum þeirra hefur verið frestað vegna manneklu.
Bæði lið eru með marga leikmenn frá Suður-Ameríku en þeir leikmenn koma til með að spila í landsleikjum á morgun.

Því verða þeir ekki klárir í leikina sem eru um helgina og fóru því félögin fram á að leikjunum yrði frestað.

Atlético átti að mæta Granada á meðan Real átti að spila við Athletic en ekki er komin ný dagsetning á leikina.

Í síðasta mánuði þurfti að fresta leik Barcelona og Sevilla, sem og leik Alaves og Villarreal af sömu ástæðum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.