Fotbolti.net
13.10.26 - 23:55
Brynjar Ingi Erluson

Carragher gagnrýnir Martínez - „Mér finnst þetta hræðilegt hjá honum“

Lisandro Martínez

Lisandro Martínez

Canon

Mynd: EPA

Jamie Carragher, sparkspekingur hjá CBS, telur að Lisandro Martínez hafi gert stór mistök með því að gagnrýna stjórnarmenn Manchester United opinberlega eftir 2-0 tap liðsins gegn Atlético Madríd í Meistaradeildinni í kvöld.
Martínez skaut föstum skotum á stjórn Man Utd
TENGT EFNI

Martínez skaut föstum skotum á stjórn Man Utd

Martínez gagnrýndi Jason Wilcox, tæknilegan stjórnanda Manchester United, harðlega fyrir að hafa ekki styrkt leikmannahópinn nægilega í sumar.

Hann telur að önnur stórlið séu með mun sterkari hópa en United og sagði jafnframt í viðtali við CBS að hann ætlaði ekki að halda kjafti því annars myndi ekkert breytast hjá félaginu.

Carragher telur að Martínez hafi gert stór mistök með því að gagnrýna stjórnarmenn félagsins opinberlega.

„Þetta gerir engum gott og verður aðalsagan næstu daga. Öll umræðan mun snúast um þetta. Í öllum stuðningsmannahópum er fólk sem hefur horn í síðu jakkafatakallanna og þeirra sem sitja í stjórnunarstöðum.“

„Mér finnst hræðilegt að hann hafi ákveðið að segja þetta á þessari stundu. Hann talar um að United hafi átt frábært tímabil í fyrra en það er einfaldlega ekki rétt.“


Carragher var heldur ekki hrifinn af frammistöðu Martínez sjálfs í upphafi tímabilsins.

„Hann var hræðilegur í byrjun tímabilsins. Virkilega slakur.“

Hann telur jafnframt að ummæli Martínez séu ósanngjörn gagnvart samherjum hans, sérstaklega þeim sem komu til félagsins í sumar.

„Þegar leikmenn tala svona eru þeir aldrei að gagnrýna sína eigin stöðu. Hann er ekki að tala um miðvarðastöðuna heldur aðrar stöður í liðinu. Hvernig haldið þið að leikmönnunum sem komu í sumar líði þegar þeir heyra þetta?“

Carragher segir að leikmenn eigi að standa saman og verja félagið út á við, jafnvel þótt þeir séu ósáttir við það sem gerist innan þess.

„Fótboltafélagið er fjölskyldan þín. Þegar þú gengur út um dyrnar áttu að setja Manchester United í fyrsta sæti. Þið eigið að standa saman og verja hver annan, jafnvel þótt þið þurfið stundum að setja upp ákveðið leikrit fyrir fjölmiðla. Þetta var algjörlega glórulaust hjá honum,“ sagði Carragher.
Jamie Carragher

Jamie Carragher

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.