13.10.26 - 21:41
Andri Stefánsson
Diljá Ýr: Við vissum að við værum betri aðilinn
Auglýsing

Kom inn á og skoraði tvö.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ísland tók á móti Króatíu í seinni leik liðanna í umspili HM í kvöld. Leikar enduðu með 5-0 sigri Íslands, 9-0 samanlagt. Ísland mætir Portúgal í úrslitaleik umspilsins. Diljá Ýr kíkti í viðtal til fótbolta.net eftir leik.

TENGT EFNI
Einkunnir Íslands - mögnuð frammistaða hjá okkar stelpum
Ísland vann einvígið samanlagt 9-0 og tryggði sér sæti í úrslitaumspili um sæti á HM.
„Við vorum með stjórn á leiknum allan tímann, miklu betri en þær og sýndum það frá fyrstu mínútu til loka leiks. Bara vel gert.“
Diljá Ýr kom inn af varamannabekknum og skoraði tvö mörk í leiknum.
„Það er alltaf gaman að skora, bæði nær og fjær. Þær sem byrja eru búnar að keyra þær niður og opna þær. Við sem komum inn á völlinn þurfum að nýta okkur það og halda því áfram.“
Íslenska liðið var með fjögurra marka forskot fyrir leikinn en Diljá segir að það hafi ekki breytt hugarfari liðsins.
„Við hugsuðum bara að við ættum að mæta í þennan leik eins og staðan væri 0-0. Sýna þeim þá virðingu að við mætum til leiks og ætlum að spila góðan fótbolta, en ekki bara gefa okkur að þetta sé búið.“
Fram undan er einvígi gegn Portúgal í úrslitaumspilinu.
„Bara spenna, sko. Þetta er næsta skref á leiðinni að komast á HM og við mætum öllum liðum.“
Viðtalið í heild sinni má sjá hér fyrir ofan.