Fotbolti.net
13.10.26 - 21:22
Andri Stefánsson

Glódís eftir 150. landsleikinn: Gríðarlega stolt

Auglýsing
Spilaði sinn 150. landsleik

Spilaði sinn 150. landsleik

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland tók á móti Króatíu í seinni leik liðanna í umspili HM í kvöld. Leikar enduðu með 5-0 sigri Íslands, 9-0 samanlagt. Ísland mætir Portúgal í úrslitaleik umspilsins. Fótbolti.net ræddi við Glódísi, landsliðsfyrirliða eftir leik.
Glódís hefur náð risaáfanga og var heiðruð
TENGT EFNI

Glódís hefur náð risaáfanga og var heiðruð

Lestu um leikinn: Ísland 5 - 0 Króatía
„Ég er ótrúlega stolt af því hvernig við mættum til leiks. Það var virkilega gaman að spila í dag,“ sagði Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, eftir 5-0 sigur á Króatíu í kvöld.

Ísland vann einvígið samanlagt 9-0 og mætir Portúgal í úrslitaumspili um sæti á HM.

„Við fengum fullt af færum og hefðum getað skorað enn meira. Við vorum kannski ekki að spila á móti besta liðinu en þetta gerir mikið fyrir sjálfstraustið.“

Katla og Ída skoruðu báðar sitt fyrsta landsliðsmark í leiknum og var Glódís ánægð með framlag þeirra.

„Bara geggjað fyrir þær báðar og ótrúlega flott mörk líka. Þær eru allar að koma inn í þetta gríðarlega vel, sem ég er ánægð með.“

Fram undan er einvígi gegn Portúgal þar sem sæti á HM verður í húfi.

„Þetta eru bara tvö síðustu skrefin sem við þurfum að taka til að ná þessum risastóra draumi sem við eigum. Portúgal er virkilega góður andstæðingur og þetta verður allt öðruvísi verkefni. Við þurfum að undirbúa okkur vel og eiga tvær aðrar toppframmistöður.“

Glódís lék sinn 150. landsleik í kvöld og var stolt af þeim stóra áfanga.

„Ég er gríðarlega stolt. Ég hef kannski ekki gefið mér nógu mikinn tíma til að pæla í því þar sem við vorum svo mikið að einbeita okkur að þessu verkefni. Maður hefur verið hérna í ótrúlega langan tíma, gengið í gegnum alls konar upp og niður og fengið að upplifa gríðarlega margt. Ég er bara ótrúlega þakklát líka.“
Glódís eftir 150. landsleikinn: Gríðarlega stolt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.