13.10.26 - 21:29
Andri Stefánsson
Ída Marín um fyrsta landsliðsmarkið: Mun aldrei gleyma þessu
Auglýsing

Skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Ísland tók á móti Króatíu í seinni leik liðanna í umspili HM í kvöld. Leikar enduðu með 5-0 sigri Íslands, 9-0 samanlagt. Ísland mætir Portúgal í úrslitaleik umspilsins. Fótbolti.net ræddi við Ídu Marín eftir leik.

TENGT EFNI
Einkunnir Íslands - mögnuð frammistaða hjá okkar stelpum
Ída Marín Hermannsdóttir skoraði sitt fyrsta landsliðsmark fyrir Ísland í 5-0 sigri á Króatíu í kvöld. Ísland vann einvígið samanlagt 9-0 og er komið í úrslitaumspil um sæti á HM.
„Bara frábært. Við kláruðum leikinn frekar snemma og þá var það bara að halda áfram að skora meira,“ sagði Ída Marín eftir leik.
Ída var ánægð með frammistöðu íslenska liðsins þrátt fyrir að Króatar hefðu legið aftarlega á vellinum.
„Þær liggja náttúrulega svolítið lágt og það er erfitt að komast í gegnum það. En við erum með frábæra leikmenn þannig að við náum að gera það og búum til færi.“
Ída var að vonum ánægð með að hafa skorað sitt fyrsta landsliðsmark.
„Þetta er bara draumur að skora fyrir landsliðið og ég mun aldrei gleyma því, held ég.“
Ísland mætir Portúgal í úrslitaumspilinu og segir Ída að íslenska liðið sé spennt fyrir verkefninu.
„Bara vel, spennandi. Við förum í okkar félagslið, undirbúum okkur vel, æfum og spilum og mætum reiðubúnar í þá leiki.“
Viðtalið í heild sinni má sjá hér fyrir ofan.