Fotbolti.net
13.10.26 - 20:11
Brynjar Ingi Erluson

Mæta Portúgal aftur í úrslitum umspilsins

Ísland mætir Portúgal aftur í umspilinu

Ísland mætir Portúgal aftur í umspilinu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Eimskip
Það er nú endanlega ljóst að Ísland mætir Portúgal í úrslitaeinvígi HM-umspilsins þar sem sæti á HM í Brasilíu á næsta ári er í húfi.
„Það er hefndarhugur og hann þarf ekki að vera slæmur“
TENGT EFNI

„Það er hefndarhugur og hann þarf ekki að vera slæmur“

Lestu um leikinn: Ísland 5 - 0 Króatía
Ísland fór illa með Króatíu í undanúrslitum HM-umspilsins, vann fyrri leikinn á útivelli 4-0 og fylgdi því eftir með stórglæsilegum 5-0 sigri á Laugardalsvelli í kvöld.

Íslenska liðið tryggði sér þar með sæti í úrslitum umspilsins og er nú aðeins einu einvígi frá því að komast á HM í fyrsta sinn í sögunni.

Andstæðingurinn verður Portúgal sem lagði Norður-Írland 3-1 í kvöld og vann einvígið samanlagt 7-1 eftir 4-0 sigur í fyrri leiknum.

Þetta er kunnuglegur andstæðingur fyrir íslenska liðið en Portúgalir brutu hjörtu íslensku stelpnanna fyrir fjórum árum þegar þeir unnu 4-1 eftir framlengingu í úrslitum HM-umspilsins.

Nú fær Ísland tækifæri til að hefna fyrir það tap og skrifa nýjan kafla í sögubækurnar með því að tryggja sér sæti á HM í fyrsta sinn.

Úrslitaeinvígið fer fram heima og að heiman, en leikirnir verða spilaðir á tímabilinu 26. nóvember til 5. desember.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.