Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 13. nóvember 2022 15:00
Aksentije Milisic
Championship: Jói Berg kom inn á þegar Burnley komst á toppinn
Tvenna hjá Barnes.
Tvenna hjá Barnes.
Mynd: Getty Images

Burnley 3 - 0 Blackburn
1-0 Ashley Barnes ('55 )
2-0 Anass Zaroury ('74 )
3-0 Ashley Barnes ('81 )


Það var einn leikur á dagskrá í Championship deildinni á Englandi en þar mættust Burnley og Blackburn í toppbaráttuslag.

Staðan var markalaus í hálfleik en heimamenn í Burnley tók yfir í síðari hálfleiknum og unnu verðskuldaðan þriggja marka sigur.

Ashley Barnes kom liðinu á bragðið á 55. mínútu og Anass Zaroury tvöfaldaði forystuna þegar um korter var til leiksloka.

Hinn seigi Barnes var aftur á ferðinni á 81. mínútu og kláraði leikinn fyrir heimamenn sem fara upp fyrir Sheffield United á töflunni og í fyrsta sætið.

Jóhann Berg Guðmundsson kom inn á sem varamaður undir lok leiks.


Athugasemdir
banner
banner