fim 13. desember 2018 18:30
Magnús Már Einarsson
Dilja og Sierra í Hauka (Staðfest)
Tara Björk skrifar undir nýjan samning
Tara Björk Gunnarsdóttir (til vinstri) í leik með Haukum.  Hún hefur skrifað undir nýjan samning.
Tara Björk Gunnarsdóttir (til vinstri) í leik með Haukum. Hún hefur skrifað undir nýjan samning.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Diljá Ólafsdóttir.
Diljá Ólafsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Diljá Ólafsdóttir og Sierra Marie Lelii skrifuðu í gær undir samninga hjá Haukum en þær spiluðu báðar síðast með Þrótti árið 2017.

Diljá gerði eins árs samning við Hauka og kemur til félagsins frá Þrótti Reykjavík en hún á að baki 106 meistaraflokksleiki fyrir KR, HK/Víking, Aftureldingu og Þrótt. Diljá spilar sem miðvörður og kemur með mikla reynslu inn í ungt Haukalið.

Jakob Leó Bjarnason, þjálfari Hauka, segir að Diljá komi með ómetanlega reynslu og leiðtogahæfni inn í lið Hauka. „Diljá er eitt af púslunum sem við þurftum til að geta gert ungt Haukalið enn betra og að auki er hún mikill leiðtogi, enda bar hún fyrirliðabandið hjá Þrótti 2017.“

Sierra gerði tveggja ára samning við Hauka en hún kemur einnig frá Þrótti. Hún spilar sem framliggjandi miðjumaður eða framherji og gerði 9 mörk í 21 leik með Þrótti sumarið 2017.

„Sierra er lunkinn leikmaður sem gerir aðra leikmenn í kringum sig betri. Hún getur skorað mörk og skapað fyrir samherja sína," segir Jakob Leó á heimasíðu Hauka.

Tara Björk Gunnarsdóttir hefur einnig skrifað undir nýjan eins árs samning við Hauka. Tara á 81 meistaraflokks leik með Haukum frá árinu 2012.

Tara spilaði lítið á síðasta tímabili þar sem hún eignaðist sitt fyrsta barn fyrir 10 mánuðum síðan.

„Tara er reynslumikill leikmaður með Haukahjarta og það er mikið gleðiefni að við munum fá að njóta krafta hennar áfram," segir Jakob Leó.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner