Fotbolti.net
13.12.19 - 09:04
Magnús Már Einarsson

Þór/KA fær landsliðskonu frá Kosta Ríka (Staðfest)

Þór/KA fagnar marki í sumar.

Þór/KA fagnar marki í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Kvennaboltinn
Þór/KA hefur samið við varnarmanninn Gaby Guillen fyrir keppni í Pepsi Max-deild kvenna næsta sumar.

Gaby er 27 ára gömul en hún á ellefu leiki að baki með landsliði Kosta Ríka.

Gabry kemur til Þór/KA frá Deportivo Saprissa í heimalandi sínu en hún er væntanleg til Íslands í febrúar.

Þjálfaraskipti urðu hjá Þór/KA í haust en Halldór Jón Sigurðsson hætti með liðið og Andri Hjörvar Albertsson, sem hefur verið aðstoðarþjálfari, tók við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.