Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
   sun 13. desember 2020 17:40
Aksentije Milisic
„Ingibjörg er geggjaður varnarmaður, minn uppáhaldsleikmaður"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ingibjörg Sigurðardóttir varð í dag bikarmeistari með Vålerenga en liðið lagði LSK Kvinner 2-0 eftir framlengdan leik.

Ingibjörg hefur átt magnað tímabil en hún er tvöfaldur meistari með Vålerenga og þá var hún valin besti leikmaður tímabilsins í deildinni.

Jonas Giæver, virtur norskur blaðamaður, hrósaði Ingibjörgu í hástert í dag og sagði hana vera geggjaðann varnarmann.

„Ingibjörg er geggjaður varnarmaður, minn uppáhaldsleikmaður," skrifar hann á Twitter.

Sjá einnig:
Ingibjörg bikarmeistari með Vålerenga - Tvöfaldur meistari og leikmaður ársins


Athugasemdir
banner
banner
banner