Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 14. janúar 2022 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bayern fær ungan suður-kóreskan miðjumann
Mynd: Bayern Munchen
Bayern Munchen krækti í dag í leikmann frá Pohang Steelers í Suður-Kóreu.

Um er að ræða hinn átján ára Hyun-ju Lee og kemur hann á láni til Bayern út þetta tímabil.

Bayern fær tækifæri til að kaupa Lee að láninu loknu. Hann mun spila með varaliði félagsins út þetta tímabil.

Lee hefur verið fyrirliði unglingaliðs Steelers. Samkvæmt Transfermarkt er hann metinn á 25 þúsund evrur og á að baki tíu leiki fyrir yngri landslið Suður-Kóreu.
Athugasemdir
banner
banner
banner