Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 14. janúar 2022 11:15
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
KR fær unglingalandsliðsmann frá Breiðabliki (Staðfest)
Mynd: KR
KR hefur gengið frá þriggja ára samningi við Rúrik Gunnarsson. Rúrik er sextán ára gamall.

Rúrik er miðjumaður sem kemur frá Breiðabliki.

Hann á að baki fjóra landsleiki með U17 ára landsliðinu.

„Það verður spennandi að sjá hann vaxa og dafna með KR næstu þrjú árin," segir í tilkynningu KR.

Rúrik var hluti af liði Breiðabliks sem varð Íslandsmeistari í 3. flokki síðasta sumar.
Athugasemdir
banner
banner