Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 14. febrúar 2019 14:30
Magnús Már Einarsson
Zeiko Lewis til Charleston Battery (Staðfest)
Zeiko Lewis í leik með FH.
Zeiko Lewis í leik með FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Zeiko Lewis hefur gengið til liðs við Charleston Battery sem spilar í næstefstu deild í Bandaríkjunum.

Zeiko er landsliðsmaður Bermúda en hann gekk til liðs við FH síðastliðinn vetur.

Þessi 23 ára gamli kantmaður spilaði fjóra leiki með FH í Pepsi-deildinni áður en hann fór til HK á láni í júlí.

Zeiko skoraði þrjú mörk í sjö leikjum í Inkasso-deildinni með HK og hjálpaði liðinu upp í Pepsi-deildina.

Athugasemdir
banner
banner
banner