Chelsea er á blússandi siglingu í toppbaráttu ensku kvennadeildarinnar og skoraði liðið fimm mörk á útivelli gegn Bristol City í dag.
Fran Kirby skoraði tvennu og þá gerðu Pernille Harder, Sam Kerr og Beth England eitt mark hver.
Chelsea er með 38 stig eftir 15 umferðir, fimm stigum á undan Manchester City í öðru sæti. Bristol vermir botnsætið með 6 stig eftir 14 umferðir.
Reading og Everton gerðu þá jafntefli og eru jöfn á stigum í fimmta og sjötta sæti.
Bristol City 0 - 5 Chelsea
0-1 F. Kirby ('14)
0-2 P. Harder ('36)
0-3 F. Kirby ('40)
0-4 S. Kerr ('55)
0-5 B. England ('60)
Reading 1 - 1 Everton
1-0 R. Rowe ('34)
1-1 N. Sorensen ('77)
Athugasemdir