Fotbolti.net
14.03.14 - 19:04
Magnús Már Einarsson

KV spilar í 1. deild í sumar (Staðfest)

KV spilar í 1. deild í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Nýliðar KV hafa fengið keppnisleyfi í 1. deild karla í sumar en þetta varð ljóst eftir fund leyfisráðs KSÍ síðdegis í dag.

KV fær aðlögun hvað varðar skilyrði um unglingastarf en þetta staðfesti Páll Kristjánsson annar af þjálfurum liðsins við Fótbolta.net í dag.

Gervigrasvöllur hefur verið heimavöllur KV en hann er ekki löglegur í 1. deild. Félagið fær því keppnisleyfi þar sem stefnt er á að heimaleikirnir fari í Egilshöll.
,,Við fáum samþykki út á að við spilum í Egilshöll. Við erum komnir með grunn sem við getum unnið út frá. Í versta falli spilum við í Egilshöll en það er engin óskastaða,\" sagði Páll Kristjánsson þjálfari.

Þar með er útlit fyrir að tvö félög leiki innandyra í 1. deild í sumar en HK mun spila heimaleiki sína í Kórnum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.