Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 14. maí 2019 20:57
Ívan Guðjón Baldursson
Mjólkurbikar kvenna: Hafnarfjörður úr leik
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA og Þróttur R. eru komin áfram eftir Inkasso-slagi dagsins í Mjólkurbikar kvenna.

ÍA heimsótti FH og gerði Erla Karitas Jóhannesdóttir eina mark leiksins á 53. mínútu. Liðin mættust í deildinni síðasta fimmtudag og lauk þeirri viðureign með 1-1 jafntefli á Akranesi.

Þróttur R. komst þá í 3-0 gegn Haukum. Olivia Marie Bergau skoraði eina markið í fyrri hálfleik og setti Lauren Wade tvennu í þeim síðari.

Haukar klúðruðu vítaspyrnu og náðu svo að minnka muninn undir lokin með marki frá Regielly Oliveira Rodrigues.

FH 0 - 1 ÍA
0-1 Erla Karitas Jóhannesdóttir ('53)

Þróttur R. 3 - 1 Haukar
1-0 Olivia Marie Bergau ('14)
2-0 Lauren Wade ('53)
3-0 Lauren Wade ('71)
3-1 Regielly Oliveira Rodrigues ('82)



Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner