lau 14. maí 2022 17:54
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Forest í góðum málum fyrir seinni undanúrslitaleikinn
Nottingham Forest er komið með annan fótinn í úrslitaleikinn
Nottingham Forest er komið með annan fótinn í úrslitaleikinn
Mynd: Getty Images
Sheffield Utd 1 - 2 Nott. Forest
0-1 Jack Colback ('10 )
0-2 Brennan Johnson ('71 )
1-2 Sander Berge ('90 )

Nottingham Forest lagði Sheffield United að velli, 2-1, í fyrri leik liðanna í undanúrslitum umspilsins í ensku B-deildinni í dag.

Forest hafnaði í 3. sæti B-deildarinnar á þessari leiktíð og gerir sér miklar vonir um að fara upp en Sheffield United hafnaði í 6. sæti.

Jack Colback kom Forest yfir á 6. mínútu áður en Brennan Johnson, einn besti leikmaður deildarinnar á þessari leiktíð, gerði annað markið tuttugu mínútum fyrir leikslok.

Norski miðjumaðurinn Sander Berge minnkaði muninn undir lok leiks og lokatölur 2-1 fyrir Forest. Síðari leikurinn er á City Ground en sigurvegarinn fer í úrslitaleik umspilsins og mætir þar Huddersfield Town eða Luton.
Athugasemdir
banner
banner
banner