Kormákur/Hvöt spilar í 3. deildinni í sumar og fékk á lokadegi félagaskiptagluggans liðsstyrk þegar Ingibergur Kort Sigurðarson gekk í raðir félagsins frá Víkingi Ólafsvík.
Ingibergur er uppalin hjá Hvöt en gekk í raðir Fjölnis árið 2014. Síðan hefur hann spilað með Fjölni, Njarðvík, Víkingi Ólafsvík og Vatnaliljum.
Hann er 24 ára sóknarþenkjandi lekmaður. Kormákur/Hvöt tapaði gegn Vængjum Júpíters í 1. umferð deildarinnar og mætir ÍH í Skessunni í dag.
Á lokadögum félagaskiptagluggans fékk Kormákur/Hvöt auk Ingibergs þá Papa Dounkou Tecagne frá Austra, Goran Potkozarac frá Serbíu, Erik Hallgrímsson frá Ægi og Aliu Djalo frá Víði.
Athugasemdir