Íslandsmeistarar Víkings fara vel af stað í ár en eftir jafntefli liðsins gegn Breiðabliki í fyrstu umferð hefur liðið unnið sex leiki í röð.
Þar með talinn 2-0 sigur liðsins á HK í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í gær.
Þar með talinn 2-0 sigur liðsins á HK í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í gær.
Víkingur heimsækir ÍBV á sunnudaginn en Fótbolti.net ræddi við Aron Baldvin Þórðarson, aðstoðarþjálfara Víkings, eftir sigurinn á HK. Hann sagði að Víkingar muni sigla til Eyja á laugardaginn.
„Æfum í Eyjum daginn áður, mér líst vel á Eyjamenn, vantað kannski aðeins meira drápseðli á síðasta þriðjung en öflugir milli teiganna. Það er verðugt verkefni og sérstaklega þar sem þetta er í Eyjum," sagði Aron Baldvin.
Eyjamenn eru aðeins með eitt stig á botni deildarinnar en liðið hefur tapað fimm leikjum í röð eftir jafntefli gegn FH í fyrstu umferð.



