Fotbolti.net
14.06.21 - 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
Í samstarfi við styrktaraðila

Yaya Toure til Rússlands (Staðfest)

Lærði af þeim besta.

Lærði af þeim besta.

Canon

Mynd: Getty Images

Yaya Toure, fyrrum leikmaður Barcelona og Manchester City, er fluttur til Téténíu í Rússlandi þar sem hann er orðinn partur af þjálfarateymi Akhmat Grozny. Þar mun hann sinna starfi sem aðstoðarþjálfari Andrey Talalaev.
Yaya er búinn að skrifa undir eins árs samning við félagið sem er talið bjóða honum væna fúlgu fjárs fyrir aðstoðina.

Yaya er 38 ára gamall og lagði skóna á hilluna í fyrra en spilaði síðast keppnisleik 2019.

Akhmat endaði í ellefta sæti rússnesku deildarinnar á síðustu leiktíð og verður áhugavert að sjá hvaða áhrif Yaya getur komið með í liðið.

Yaya var aðstoðarþjálfari Olimpik Donetsk í Úkraínu fyrri hluta ársins og skiptir nú yfir til Téténíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.