Í dag var greint frá því að Nemanja Matic hefði skrifað undir eins árs samning við ítalska félagið Roma.
Matic er 33 ára miðjumaður og kemur hann á frjálsri sölu frá Manchester United eftir fimm ár í Manchester.
Matic er 33 ára miðjumaður og kemur hann á frjálsri sölu frá Manchester United eftir fimm ár í Manchester.
Jose Mourinho, stjóri Roma, er í þriðja sinn á ferlinum að sækja Matic í sitt lið. Hann fékk hann til Chelsea frá Benfica árið 2014, til Manchester United árið 2017 og svo núna til Roma.
Matic hefur á sínum ferli tvisvar sinnum unnið ensku úrvalsdeildina, tvisvar sinnum orðið enskur bikarmeistari og tvisvar sinnum komist í úrslitaleik Evrópudeildarinnar en tapað í bæði skiptin.
Roma verður í Evrópudeildinni næsta vetur eftir að hafa unnið Sambandsdeildina í vor.
🖊️ 𝗡𝗘𝗪 𝗦𝗜𝗚𝗡𝗜𝗡𝗚 | Nemanja Matic 👋
— AS Roma English (@ASRomaEN) June 14, 2022
Welcome to the Giallorossi! 🐺#ASRoma | @NemanjaMatic pic.twitter.com/usnspSIHtW
Athugasemdir