Fotbolti.net
14.06.26 - 22:40
Ívan Guðjón Baldursson

3. deild: Dýrmætir sigrar hjá toppliðunum

3. deild: Dýrmætir sigrar hjá toppliðunum
Canon

Mynd: Tindastóll

Það fóru fjórir leikir fram í 3. deildinni í dag þar sem topplið Tindastóls og Víðis unnu sína leiki.
Stólarnir tóku á móti Augnabliki og náðu forystunni með marki frá Tiago Assis í fyrri hálfleik.

Heimamenn leiddu nánast allan leikinn, allt þar til Finnur Breki Finnsson jafnaði metin á lokamínútunum.

Gestirnir úr Kópavogi héldu að þeir væru búnir að bjarga stigi en svo var ekki, því Ariel Reinero skoraði sigurmark leiksins á 91. mínútu og urðu lokatölur 2-1.

Tindastóll er með 19 stig eftir 8 umferðir, alveg eins og Víðir Garði sem gerði sigurmark á lokamínútunum gegn Hetti er liðin mættust á Egilsstöðum.

Höttur komst yfir í fyrri hálfleik en Dominic Lee Briggs var fljótur að jafna. Staðan hélst 1-1 þar til á lokakaflanum þegar Sveinn Andri Sigurpálsson náði að pota inn sigurmarki til að fullkomna endurkomusigur Víðis.

Reynir Sandgerði situr í þriðja sæti deildarinnar eftir öruggan sigur gegn Sindra. Sandgerðingar deildu mörkunum bróðurlega á milli sín og eiga 16 stig, þremur minna heldur en toppliðin tvö.

KF hafði að lokum betur gegn KÁ en bæði lið eru um miðja deild, með 9 stig.

Tindastóll 2 - 1 Augnablik
1-0 Tiago Castanheira Assis ('29 )
1-1 Finnur Breki Finnsson ('89 )
2-1 Ariel Reinero ('91 )

Höttur 1 - 2 Víðir
1-0 Pablo Ruiz Gea ('32 )
1-1 Dominic Lee Briggs ('36 )
1-2 Sveinn Andri Sigurpálsson ('81 )

Reynir S. 4 - 1 Sindri
1-0 Ingólfur Sigurðsson ('7 )
2-0 Mate Paponja ('29 )
3-0 Sigurður Orri Ingimarsson ('33 )
3-1 Fuseini Issah ('54 )
4-1 Sævar Orri Valgeirsson ('78 )

KF 2 - 1 KÁ
1-0 Ljubomir Delic ('22 )
2-0 Caio Afonso Cogo Oliveira ('39, víti)
2-1 Kristján Ólafsson ('68 )
3. deild: Dýrmætir sigrar hjá toppliðunum
Canon

Mynd: Víðir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.