Fotbolti.net
14.06.26 - 23:48
Ívan Guðjón Baldursson

5. deild: Stokkseyri á toppinn

5. deild: Stokkseyri á toppinn
Canon

Mynd: Stokkseyri

KM 1 - 3 Stokkseyri
1-0 Karabo Mgiba ('28 )
1-1 Marteinn Maríus Marinósson ('43 )
1-2 Arilíus Óskarsson ('54 )
1-3 Hafþór Berg Ríkarðsson ('85 )
Rautt spjald: Gabríel Midjord Jóhannsson, KM ('70)
Rautt spjald: Daníel Dagur Henriksson, KM ('70)
Rautt spjald: Karolis Dovydas Zukauska, KM (+)
Rautt spjald: Joaquin Linares Cordoba, KM (+)
Það voru mikil læti í eina leik dagsins í 5. deild karla þegar Knattspyrnufélagið Miðbær fékk Stokkseyri í heimsókn.

Karabo Mgiba kom KM yfir í fyrri hálfleik en Marteinn Maríus Marinósson jafnaði metin fyrir Stokkseyringa svo staðan var jöfn, 1-1, í leikhlé.

Arilíus Óskarsson kom Stokkseyringum yfir skömmu eftir leikhlé og á 70. mínútu fengu tveir leikmenn heimamanna að líta seinni gulu spjöldin sín á sama tíma.

Gabríel Ernir Midjord Jóhannsson og Daníel Dagur Henriksson fengu báðir reisupassann þegar staðan var 1-2 fyrir gestina frá Stokkseyri.

Níu heimamenn náðu ekki að jafna metin. Þess í stað innsiglaði Hafþór Berg Ríkarðsson sigur Stokkseyringa á 85. mínútu. Lokatölur 1-3.

Leikmenn KM voru ósáttir að leikslokum og mótmæltu dómgæslunni. Samkvæmt vefsíðu KSÍ fengu markvörðurinn Karolis Dovydas Zukauskas og forráðamaðurinn Joaquin Linares Cordoba að líta bein rauð spjöld í liði KM eftir lokaflautið.

Stokkseyri fer á topp B-riðils með sigrinum. Liðið er þar með 13 stig eftir 6 umferðir en getur misst toppsætið aftur til Hamranna sem eiga leik til góða gegn botnliði KB.
5. deild: Stokkseyri á toppinn
Canon

Mynd: Stokkseyri

5. deild: Stokkseyri á toppinn
Canon

Mynd: SLOJ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.