Fotbolti.net
14.06.26 - 22:25
Ívan Guðjón Baldursson
Kjarninn

Byrjunarlið Fílabeinsstrandarinnar og Ekvador: Amad Diallo á bekknum

Byrjunarlið Fílabeinsstrandarinnar og Ekvador: Amad Diallo á bekknum
Canon

Mynd: EPA

Fílabeinsströndin og Ekvador eigast við í spennandi slag á heimsmeistaramótinu í kvöld og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.
Þar er ýmislegt sem kemur á óvart en nokkrir afar spennandi leikmennn mætast í þessum leik.

Hinn gríðarlega eftirsótti Yan Diomande byrjar á kantinum hjá Fílabeinsströndinni sem er með Nicolas Pépé og Elye Wahi í fremstu víglínu. Pépé er næstdýrasti leikmaður í sögu Arsenal og átti frábært tímabil með Villarreal á nýliðinni leiktíð.

Það vekur þó athygli að Amad Diallo, kantmaður Manchester United, byrji á bekknum ásamt Evann Guessand, Simon Adingra, Evan Ndicka og Ibrahim Sangaré.

Reynsluboltarnir Seko Fofana og Franck Kessié byrja á miðri miðjunni og munu mæta Moisés Caicedo og Alan Franco þar.

Varnarlínan hjá Ekvador er rosaleg og inniheldur Willian Pacho sem varð Evrópumeistari með PSG í lok maí ásamt Piero Hincapié sem var í tapliði Arsenal.

36 ára gamall Enner Valencia, sem lék á sínum tíma fyrir West Ham og Everton, leiðir sóknarlínu Ekvador og má finna nokkur þekkt nöfn á borð við Kendry Páez, Pervis Estupinan og Nilson Angulo á bekknum.

Fílabeinsströndin: Y.Fofana, Doue, Singo, Agbadou, Konan, Kessie, S.Fofana, Diomande, Toure, Pepe, Wahi

Ekvador: Galindez, Ordonez, Pacho, Hincapie, Minda, Franco, Caicedo, Vite, Plata, Yeboah, Valencia
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Byrjunarlið Fílabeinsstrandarinnar og Ekvador: Amad Diallo á bekknum
Canon

Mynd: EPA

Byrjunarlið Fílabeinsstrandarinnar og Ekvador: Amad Diallo á bekknum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.