Fotbolti.net
14.07.19 - 20:53
Arnar Helgi Magnússon

Sjáðu snyrtilegt sigurmark Valgeirs gegn KA

Sjáðu snyrtilegt sigurmark Valgeirs gegn KA
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valgeir Valgeirsson var hetja HK í kvöld en hann skoraði sigurmark liðsins gegn KA í Pepsi Max-deildinni.

Leiknum lauk með 2-1 sigri HK en sigurmarkið kom þegar fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma.
Smelltu hér til þess að lesa nánar um leikinn.

Björn Berg Bryde kom HK yfir í leiknum en Hallgrímur Mar jafnaði af vítapunktinum skömmu fyrir hálfleik.

HK situr í áttunda sæti deildarinnar eftir leikinn í kvöld en KA er í tíunda sæti og hefur liðið nú tapað fjórum leikjum í röð. Ekki gott ástand á Akureyri.

Hér að neðan má sjá öll þrjú mörk leiksins frá Vísi.is



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.