Fotbolti.net
14.07.22 - 22:08
Kjartan Leifur Sigurðsson

Davíð Smári: Ég er gríðarlega ósattur

Auglýsing
Davíð Smári: Ég er gríðarlega ósattur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
„Mér fannst frammistaðan allt í lagi. Við gefum bara leikinn frá okkur á þremur mínutum. Fínir spilkaflar inn á milli en við gefum fyrsta markið og mætum ekki til leiks í seinni hálfleik fyrr en eftir 3 mínutur og okkur var refsað í dag." Segir Davíð Smári Lamude þjálfari Kórdrengja eftir 4-1 tap gegn Fylki í kvöld.
Eftir að Kórdrengir skoruðu þá kom góður kafli hjá Kórdrengjum sem endaði eftir að Fylkir setti fjórða mark leiksins.

„Öll mörkin voru ódýr. Fyrsta markið var gjöf eftir mistök hjá markmanni okkar og í öllum hinum mörkunum klárum við ekki hlaupin okkar og þeir komast inn fyrir okkur og á bakvið. Menn þurfa að vinna í þessu eða einfaldlega hætta þessu. Ég er gríðarlega ósáttur að eftir fínt spjall í hálfleik að liðið mætti ekki til leiks í seinni hálfleik."

Næsti leikur Kórdrengja er gegn Þór Akureyri sem vann fyrri leik þessara liða.

„Maður fer í alla leiki til að vinna. Við vinnum ekki þann leik ef við ætlum ekki að spila allar mínuturnar því þá verður okkar refsað. Það er ekki boðlegt í þessari deild og ég er mjög ósáttur með ákveðna hluti."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.