Fotbolti.net
14.07.26 - 20:27
Helgi Inguson

Karl Ágúst: Er loksins búinn að kveikja á mér

Auglýsing
Karl Ágúst segir ekki annað en sigur í boði í næsta leik gegn Vestra

Karl Ágúst segir ekki annað en sigur í boði í næsta leik gegn Vestra

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Karl Ágúst Karlsson, leikmaður HK, átti annan stjörnuleikinn í röð í 5-1 sigri HK gegn ÍR. Hann skoraði eitt og lagði upp annað, hann ræddi við Fótbolta.net eftir leik.
Lestu um leikinn: HK 5 - 1 ÍR
„Mér líður bara mjög vel. Geggjaður sigur, 5-1. Fengum samt skítamark á okkur í lokin en yfir höfuð bara mjög góður leikur hjá okkur. Við vorum on it, nýttum öll færin okkar og gerðum það sem við erum góðir í. Breakuðum vel á þá og gerðum allt vel," sagði Karl Ágúst um leikinn.

HK er taplaust á heimavelli það sem af er móts. Velgengni þeirri hélt svo sannarlega áfram í dag. „Okkur líður mjög vel hérna í hlýjunni. Svona verður þetta í sumar, taplausir heima."

Karl Ágúst hefur verið á eldi síðustu daga og er með tvö mörk og tvær stoðsendingar í tveimur leikjum. „Já, ég er búinn að kveikja á mér, loksins. Og þá byrjar þetta allt," sagði hann að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.