Miðjumaðurinn Heiðar Geir Júlíusson er kominn til Englands en hann hefur náð samkomulagi við Cambridge City sem spilar í Southern League Premier Division, sjöundu efstu deild sem er ein af utandeildunum.
Cambridge vann Arlesey Town á dögunum en liðið hefur unnið báða leiki sína til þessa á tímabilinu.
Heiðar lék síðast með HamKam í Noregi en fór til Cambridge á undirbúningstímabilinu og náði að heilla forráðamenn félagsins.
Heiðar er 26 ára og lék sex leiki með Fylki í Pepsi-deildinni í fyrra en stóð ekki undir væntingum. Hann lék með Fram 2004-2009 með eftirtektarverðum árangri áður en hann hélt til Ängelholms Svíþjóð.
Athugasemdir