Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 14. ágúst 2020 14:47
Magnús Már Einarsson
Chong á leið til Werder Bremen
Mynd: Getty Images
Tahith Chong, kantmaður Manchester United, er nálægt því að ganga til liðs við Werder Bremen á láni.

Hinn tvítugi Chong skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við Manchester United í mars.

Hann er í leit að spiltíma til að fá reynslu og útlit er fyrir að hann fari til Werder Bremen.

Werder Bremen á ekki mikið fé til leikmannakaupa og ætlar því á lánsmarkaðinn í sumar.

Werder Bremen var nálægt því að falla á síðasta tímabili en á endanum hélt liðið sæti sínu í þýsku Bundesligunni.
Athugasemdir
banner
banner
banner