„Ég var ekki sammála þjálfarateymi KR og þess vegna vildi ég fara annað"
Auglýsing

Alex Freyr

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alex Freyr

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er kominn á þann stað núna að mér finnst gaman að spila alla leiki en shit hvað það er pirrandi að tapa þessu," sagði Alex Freyr Hilmarsson, leikmaður Kórdrengja, eftir tap gegn ÍBV í dag.
„Ég er frekar slæmur en í öllu öðru er ég fínn, ég er bara þreyttur eftir þessa þrjá leiki; langt síðan ég hef spilað eitthvað," sagði Alex aðspurður um stöðuna á skrokknum.
Hann kemur inn á þá staðreynd að hann hefur ekki spilað mikið að undanförnu. Hann hefur glímt við erfið meiðsli og var í sumar í algjöru aukahlutverki hjá KR. Alex er á láni hjá Kórdrengjum frá KR út þetta tímabil.

Hvernig er að vera í Kórdrengjum? „Það er mjög gaman, það er mikill metnaður hérna og alvöru ástríða hérna. Ég fíla það í botn."
Af hverju ertu í Kórdrengjum? „Ég þurfti að fá leiki og Kórdrengir var eitt af þeim liðum sem heyrðu í mér. Það er verið að spila upp á eitthvað hérna, alvöru ástríða og þetta lið er mikið unit - alvöru lið."
Alex segir að það hafi alveg komið til greina að fara til liðs í efstu deild og að hann hafi verið svekktur með fáar mínútur hjá KR. Geturu séð það fyrir þér að vera hér lengur en út þetta tímabil?
„Já, alveg eins. Ég er í raun opinn fyrir öllu. Ég er samningsbundinn út næsta tímabil hjá KR en ég hef ekki hugmynd hvað gerist."
Var einhver ástæða fyrir fáum mínútum hjá KR?
„Maður fékk alltaf einhverjar ástæður, ég persónulega var ekki sáttur við þær ástæður en ég virði þær alveg, það er ekki það. Þjálfarateymi KR, þetta eru algjörir meistarar og ég hef ekkert út á það að setja en ég var ekki sammála þeim og þess vegna vildi ég fara einhvert annað," sagði Alex.
Viðtalið í heild má sjá hér að ofan.